Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Það er auðvitað engin leið fyrir mig til að segja hvort hún myndi ganga lengra eða nákvæmlega jafn langt eða skemur. Ég hins vegar met það svo á grundvelli þeirra upplýsinga, lesturs og almenns skilnings og með því að beita minni dómgreind í því, þá held ég að meiri líkur væru á að dómsniðurstaða myndi ganga lengra vegna þess að við erum að ganga eins skammt og við mögulega teljum okkur komast upp með til að uppfylla bókun 35. Hins vegar, eins og ég nefndi í minni ræðu, þá eru það í mínum huga — þó að það sé í greinargerðinni og við höfum alltaf haldið því til haga — ekkert sérstök rök að ella færi þetta út og það myndi koma einhver niðurstaða þaðan. Ég er bara þeirrar skoðunar: Ég vil bara hafa þetta í lagi. Ég vil bara geta sagt að bókunin sé réttilega innleidd til að tryggja að borgarar og lögaðilar njóti þeirra réttinda sem EES-samningurinn kveður á um. Þannig að mér er þannig séð — kannski ekki sama — en það eru ekki megin rök í málinu fyrir mér að við verðum að klára þetta af því að annars fari þetta til útlanda. Ég vil bara klára þetta vegna þess að ég (Forseti hringir.) vil að almennir borgarar njóti þeirra réttinda sem samningurinn kveður á um.