Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar svar. Mig langar líka aðeins að velta vöngum yfir valdaframsali og hugsanlegu stjórnarskrárbroti ef við samþykkjum þessa bókun. Við undirgengumst öll skilyrði þess að vera hluti af samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og það hefur ekki verið talað um að sá samningur hafi gert það að verkum að við höfum brotið stjórnarskrá. Hér er verið að tala um að með því að samþykkja bókun 35 værum við hugsanlega að ganga gegn stjórnarskránni. Ég vil spyrja hver hennar skoðun er á því og hvort einhver munur sé á þessu og þeim alþjóðasamningum sem við höfum undirgengist í gegnum tíðina, og þeir eru mýmargir?