156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[11:43]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Í dómi Hæstaréttar er því slegið föstu að bókun 35 sé ekki fyllilega innleidd hér á Íslandi. Þar segir, með leyfi forseta: „Þannig hefur ekki verið lagt til grundvallar að það ákvæði“ — sem er þá skýringarregla 3. gr. laganna — „feli í sér almenna forgangsreglu í samræmi við bókun 35 við samninginn.“ Hæstiréttur tiltekur dæmi um sams konar forgangsreglur og lagðar eru til í frumvarpinu og gerir ekki athugasemdir við þær. Það má því ætla að að mati Hæstaréttar þurfum við ekki að hafa áhyggjur af þessu frumvarpi. Fyrir utan það höfum við fjöldann allan af öðrum fræðimönnum sem hafa tjáð sig um málið. Í afmælisriti EFTA-dómstólsins skrifuðu Þorgeir Örlygsson og Benedikt Bogason grein þar sem þeir segja m.a. að vegna þeirrar ósamkvæmni sem gætt hafi í dómaframkvæmd sé það mikilvægt að íslenski löggjafinn leysi úr vandanum og setji í lög skýrt og óskilyrt ákvæði á þessu sviði og virði þannig þær skuldbindingar sem fram koma í bókun 35. Menn væru ekki að tala með þessum hætti og skrifa og birta ef þeir teldu síðan að viðbrögð við því fælu í sér brot á stjórnarskrá.