156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[11:45]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ágætu ræðu. Ég hjó eftir því að hún var að tala um að — og hennar skoðun er auðvitað allt í lagi. Það er allt í lagi að hafa þá skoðun að Evrópulöggjöf hafi hér forgang. Það er ekkert að því. Það eina sem mér finnst standa í vegi er stjórnarskráin. Ef menn ætla að veita Evrópureglum forgang, þá þarf ekki svona lagafrumvarp, þá þarf stjórnarskrárbreytingu. Eru menn að stytta sér leið með því að fara í þessa lagabreytingu að mati hv. þingmanns eða reyna að komast hjá því að fara í breytingar á stjórnarskrá? Vegna þess að það að gefa Evrópureglum forgang fram yfir íslensk lög sem sett eru hér á Alþingi gengur á rétt löggjafans á Íslandi.