156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[11:46]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Þegar ég les niðurstöðu Hæstaréttar sé ég að þeir tiltaka m.a. ákveðnar forgangsreglur og gera ekki athugasemd við það, þeir taka dæmi og gera síðan ekki athugasemdir við það. Ella myndum þeir væntanlega taka þessi dæmi og segja: Reyndar er vafi á því hvort þetta sé í samræmi við stjórnarskrá. Þeir gera það ekki. Þegar maður les niðurstöðu Hæstaréttar þá get ég ekki komist að annarri niðurstöðu en að Hæstiréttur telji að frumvarp sem er í anda þess sem hér er verið að leggja fram fari ekki gegn stjórnarskrá. Ef Hæstiréttur Íslands telur svo ekki vera þá líður mér ágætlega með að halda minni skoðun fram sem er ekki bara pólitísk heldur líka mín lagalega skoðun, lagalega niðurstaða, að það sé ekki þannig. Ég er ekki þeirrar skoðunar og ég kemst ekki að þeirri niðurstöðu að þetta frumvarp fari á svig við stjórnarskrá, brjóti stjórnarskrá eða gangi of langt, heldur sé hún innan ramma hennar. Ég get ekki túlkað (Forseti hringir.) þetta öðruvísi en að Hæstiréttur Íslands, fullvalda sjálfstæðisríkis, sé því sammála.