Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég skil alveg hvaðan hv. þingmaður er að koma. En ef maður gengur lengra og klárar þessa hugsun þá fæ ég á tilfinninguna að samhengið sé einhvern veginn eins og þessar reglur séu okkur óviðkomandi eða að einhvern veginn sé verið að þvinga þeim upp á okkur. Við megum aldrei gleyma að stinga þessu í samband við þá ákvörðun okkar sem við tókum um að vera aðilar að EES-samningnum. Við féllumst á þær skuldbindingar sem þeim samningi fylgir. Til að mynda þegar Hæstiréttur dæmir í umræddu máli varðandi fæðingarorlofið, þá er það einfaldlega þannig að konan átti ríkari rétt samkvæmt EES-samningnum sem við erum búin að segja að við viljum fylgja, en ekki samkvæmt íslenskum lögum. Hefði bókun 35 verið réttilega innleidd hefði Hæstiréttur talið sér fært að túlka þann ríkari rétt henni í vil af því að þú ert að túlka saman þau lög og þessi lög.(Forseti hringir.) (KGH: Löggjafarvaldið er einskis virði.) En hann telur sig ekki geta það. (Forseti hringir.) (KGH: Einskis virði er löggjafarvaldið hér.)(Forseti hringir.)
(Forseti (EÁs): Ég bið hv. þingmenn um að virða þingsköp, samtöl úr sal eru ekki leyfileg.)