156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[11:50]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins nánar út í skilning hennar á umræddum nýföllnum hæstaréttardómi í fæðingarorlofsmálinu, hvernig hún dragi þá ályktun af dómnum, eins og mér heyrist hún gera, að Hæstiréttur sé með einhverjum hætti að mælast til eða leggja blessun sína yfir að bókun 35 verði innleidd með þeim hætti sem þetta frumvarp kveður á um. Það er algerlega ágreiningslaust, held ég, meðal manna að bókun 35 hafi ekki verið innleidd með þeim hætti að veita Evrópulöggjöfinni forgang hér — fyrir því liggja sögulegar ástæður og það liggur fyrir — heldur með 3. gr. sem kveður á um túlkunarreglu. Nú virðist það einhvern veginn vera komið þannig að með þessari niðurstöðu Hæstaréttar, sem segir að bókun 35 hafi ekki verið innleidd með forgangsreglu, telji Hæstiréttur að það sé hægt að gera það með þessum hætti. Ég er sammála Hæstarétti en ég tel að þessi aðferð til að innleiða forgangsreglu bókunar 35 (Forseti hringir.) standist ekki stjórnarskrá. Hver er afstaða hv. þingmanns í þessu?