Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Það sem Hæstiréttur segir er að það hafi ekki verið lagt til grundvallar að það ákvæði, skýringarregla 3. gr., feli í sér almenna forgangsreglu í samræmi við bókunina og svo tiltekur hann dæmi um forgangsreglur, sams konar og lagðar eru til í frumvarpinu, og gerir ekki athugasemdir við þær. Mín skoðun, út af spurningu hv. þingmanns, er þessi: Ég tel þetta augljóslega ekki brjóta gegn stjórnarskrá, annars væri ég ekki á meirihlutaáliti og hefði ekki lagt málið fram og væri ekki talsmaður þess. En ef hv. þingmenn Miðflokksins, og m.a. hv. þingmaður sem tók þátt í að skrifa frumvarpið, telja að einhver allt önnur leið hefði verið fær til að innleiða bókunina með réttum hætti — af því að hv. þingmaður hefur sagt að hún sé ekki innleidd með þessari forgangsreglu — (Forseti hringir.) væri fínt að fá það fram. En ég hef ekki heyrt nákvæm dæmi um það hvernig frumvarpið ætti að líta út til að það næði settu markmiði.