Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Það hvernig Hæstiréttur myndi dæma í framtíðinni er auðvitað eðli máls samkvæmt eingöngu undir Hæstarétti komið, þar sem hann fer með dómsvald í landinu út frá þrískiptingu ríkisvaldsins. Hv. þingmaður vitnar í fyrrverandi forseta Hæstaréttar, Markús Sigurbjörnsson. Ég leyfi mér þá að vitna í núverandi forseta Hæstaréttar og fyrrverandi, Þorgeir Örlygsson og Benedikt Bogason, þar sem þeir segja m.a., með leyfi forseta, að það sé mikilvægt að íslenski löggjafinn leysi úr vandanum og setji í lög skýrt og óskilyrt ákvæði á þessu sviði og virði þannig þær skuldbindingar sem fram koma í bókun 35. Hv. þingmaður fellst á það með réttu að hún sé ekki innleidd í samræmi við það sem hér er verið að tala um. Ég er einfaldlega á þeirri skoðun að vilja bæta úr því. Ég tel þetta frumvarp ekki fara gegn stjórnarskránni og ég tel að með þessu séum við búin að uppfylla það sem þar segir og (Forseti hringir.) tryggja að framkvæmdin sé réttari en hún er í dag.