Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Við ræðum hér, ef ég man rétt í fjórða skipti við 2. umræðu — nei, málið komst nú ekki alltaf til 2. umræðu — frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 35 eins og það er kallað í umræðunni. Mig langar fyrst að rifja örstutt upp söguna.
Það vakti nokkra athygli að þetta skyldi vera fyrsta þingmál þessarar nýju ríkisstjórnar á sínu fyrsta þingi, að mæla fyrir þessu máli. Það fór til þess að gera hratt í gegnum hv. utanríkismálanefnd. Ég man eftir mynd af formanni nefndarinnar þar sem hann stóð mjög stoltur með nefndarálit meiri hluta en síðan eru liðnir rúmir tveir mánuðir. Ég hef því reiknað með því að þetta mál kæmi hér til umræðu í góðu tómi á fyrri stigum. En hér stöndum við í dag á laugardegi, á öðrum degi þessarar umræðu og nóg eftir, segir mér hugur.
Þetta mál grundvallast auðvitað á samþykkt EES-samningsins árið 1993. Óhætt er að fullyrða að sú innleiðing bókunar 35 sem viðhöfð var þá hafi verið alger forsenda þess að málið var samþykkt. Hér hefur verið vísað til sjónarmiða sem fyrrverandi hæstv. ráðherra Björn Bjarnason hefur haft uppi um að meiningin hafi verið að gera þetta með þeim hætti sem nú er horft til. En þá nefni ég á móti sjónarmið sem þáverandi hæstv. forsætisráðherra Davíð Oddsson hefur haft uppi og talað skýrt fyrir, að það hafi verið alger forsenda að mál yrðu með þeim hætti sem raunin varð og verið hefur í meginatriðum alla tíð síðan, þar til núna fyrir nokkrum árum síðan, þegar framkvæmd samningsins hafði verið með þeim hætti sem bókun 35, eins og hún er innleidd núna, segir til um; án forgangsreglunnar. Það liggur algerlega fyrir að án þessa fyrirkomulags hefði samningurinn ekki verið samþykktur með þeim hætti sem gert var fyrir 32 árum síðan, 1993.
Ég hef oft velt því fyrir mér í tengslum við til að mynda umræðu um beitingu 102. gr. EES-samningsins og sömuleiðis varðandi þessi áform um breytta innleiðingu bókunar 35 núna, hvort að þeir sem telja sig vera hörðustu stuðningsmenn EES-samningsins séu kannski á endanum þeir sem valda samningnum mestu tjóni í umræðunni vegna þess að tilhneigingin er að nýta ekki þau verkfæri sem samningurinn veitir, eins og t.a.m. 102. gr. sem setur þrýsting á samninginn í umræðunni. Ég get sagt það hér, af því að ég reikna með að einhver komi hér og brigsli mér og félögum mínum í Miðflokknum um að vera andstæðingar EES-samningsins: Það er ekkert slíkt, alla vega er mín afstaða ekki sú. Ég vil bara að við nýtum okkur þau verkfæri sem EES-samningurinn býður upp á. Þannig verjum við samninginn ef það er það sem menn raunverulega vilja. Svo getur verið að það sé eitthvað allt annað sem menn raunverulega vilja; full innganga í Evrópusambandið eða hvað sem það kynni að vera. Hver og einn verður að útskýra það fyrir sjálfan sig.
Síðan er þessi ákvörðun, þessi nálgun sem liggur fyrir í þinginu í fjórða skipti ef ég man rétt, um að innleiða bókun 35 með þeirri forgangsreglu sem hér er lagt til að verði viðhöfð. Þetta var athugasemda– og ágreiningslaust í rétt um tvo áratugi. Svo koma einhverjar vangaveltur og áhuginn á málinu kólnaði og svo ríkur hann upp á tilteknum tímapunkti. Mér segir svo hugur, og eflaust eru margir ekki sammála mér í þeim efnum, að þessi mikla áhersla — að utan — á þessa breyttu innleiðingu bókunar 35, sé að einhverju marki undirorpin því hvernig tilteknir póstar eru mannaðir. Ég fór yfir þetta í ræðu síðast þegar þetta mál var rætt. Á þessu stigi ætla ég ekki að fara yfir það í smáatriðum en þessi áhrif blasa við þegar við skoðum myndina sem birtist okkur. Ég held að öll þau atriði sem hér eru tínd til, m.a. hæstaréttardómurinn títtnefndur um fæðingarorlofsmálið — þetta eru allt saman atriði sem við getum brugðist við með lagasetningu ef við viljum að gildandi íslenskur réttur sé með þeim hætti sem þar var deilt um. Hér kom fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra áðan, hv. þm. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og lýsti því sem hafði svo sem verið lýst í ræðum áður, að Alþingi sé í lófa lagið að setja fyrirvara í nýja löggjöf, sé ætlun Alþingis að regluverk stangist í raun á við það sem komið hefur frá Brussel, til einföldunar í umræðunni. Það er rétt. En gildandi réttur — þessi forgangsregla sem hér er lagt til að verði innleidd teppaleggur Brussel-færibandið yfir gildandi rétt. Öll lög sem þegar hafa verið sett njóta ekki þess að Alþingi geti stigið inn — það væri þá ekki nema með nýrri löggjöf sem er vegferð sem er ekki á vísan að róa með að Alþingi hafi nokkurn áhuga á eða sjái fyrir sér að gera. En gildandi réttur verður allur undirorpinn þessari forgangsreglu sem hér er lagt til að verði innleidd. Þar hefur Alþingi á fyrri stigum ekki haft tækifæri til að segja að stangist þessar reglur á við reglur sem síðar koma frá Brussel skuli þær ganga framar.
Ég sé að hv. þm. Pawel Bartoszek, framsögumaður nefndarálits, er að koma í andsvar og reikna með að við eigum samtal um þetta hér á eftir. En þetta er atriði sem mér þykir skipta gríðarlega miklu máli. Þess vegna hefur mér t.a.m. þótt skynsamlegt að ef menn á annað borð fara eitthvað áleiðis í þeirri vegferð að nálgast mál með þeim hætti sem hér er lagt til, að þá verði dregin tímalína í sandinn og skilið á milli þegar settra laga og þeirra sem sem síðar eru samþykkt í þinginu. En ég ætla ekki að fara í þær vangaveltur núna, það gæti komið síðar í þessari umræðu.
Mig langaði stuttlega aðeins að ramma inn hvernig ég sé fyrir mér að nálgast umræðuna um þetta mál í næstu ræðum mínum hérna. Þær gætu orðið allnokkrar í ljósi þess að forsetar Alþingis hafa ekki lagt það í vana sinn að heimila lengri ræðutíma eins og þingsköp heimila. Væntanlega verður heldur horft til þess að hér verði nokkur fjöldi fimm mínútna ræða sem ég mun þá reyna að skipuleggja þannig að samhengi verði í hlutunum og auðvelt að glöggva sig á fyrir þá sem líta til með þessari umræðu, annaðhvort næstum því í rauntíma eða síðar.
Til að ramma þetta inn í byrjun eru hér atriði sem ég hef þegar farið yfir; sagan og tilurð samþykktarinnar. Ég mun fara í gegnum það með hvaða hætti menn ræddu þetta á sínum tíma í aðdraganda samþykktar þessa máls, hverjar forsendurnar voru; forsendur bókunar 35 eins og hún var innleidd án þessarar forgangsreglu sem hér er lögð til. Ég mun koma inn á 102. gr. og með hvaða hætti hún hefur ekki verið nýtt, og með hvaða rökum hún hefur ekki verið nýtt á fyrri stigum, sem ég held að sé raunverulegt atriði sem til lengri tíma litið grafi undan EES-samningnum en styrki hann ekki, að sú heimild sé ekki nýtt; þessi einstaklingsbundnu áhrif sem mér sýnist hafa komið fram varðandi áhuga á þessu tiltekna máli. Ég mun koma nokkuð inn á það hér síðar í umræðunni. Réttarheimildir og mikilvægisröð þeirra — þetta er auðvitað stílbrot. Það er ekki hægt að kalla það annað, að allt í einu ráði regluverk sem kemur á færibandinu frá Brussel. Sjónarmiðum um að yngri lög gangi framar eldri er kippt úr sambandi, sérlögum gagnvart almennum lögum og þar fram eftir götunum. Það er töluvert af svona atriðum sem mér finnst nauðsynlegt að við ræðum í samhengi við þessa umræðu sem hér mun væntanlega eiga sér stað næstu daga.
Því er haldið fram að málið sé fyrst og fremst tæknilegt en staðreyndin er sú að í þessu máli er prinsippákvörðun, prinsippafstaða, prinsippbreyting, grundvallarbreyting. Oft geta mál í hugum sumra verið lítil að umfangi, fáar greinar og það allt saman. En staðreyndin er sú að áhrifin og kannski líka afleiddu áhrifin geta verið gríðarlega mikil. Það þurfum við að reyna að greina hér og átta okkur á hvað stærri myndina varðar og heildaráhrif málsins. Ég mun sömuleiðis verja töluverðum tíma í að fara í gegnum þau sjónarmið sem hæstv. utanríkisráðherra þess tíma, núverandi hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, hélt fram fyrir hönd Íslands í utanríkisráðherratíð sinni með bréfaskriftum á árinu 2020 og yfir á árið 2021, sérstaklega bréf frá 30. apríl 2021 sem er upp á einar 24 blaðsíður þar sem kjarnarökum Íslands, vörn Íslands, er haldið til haga og þau sett fram á býsna skýran máta. Það kom mér á óvart að í gegnum allt síðasta kjörtímabil fengum við almennir þingmenn ekki aðgang að þessum upplýsingum. Þessi bréf voru ekki birt en þau voru birt núna í mars eða apríl, ef ég man rétt. Ég kann núverandi hæstv. utanríkisráðherra þakkir fyrir að hafa aflétt trúnaði af þessum plöggum því það var auðvitað ótrúleg staða að finna sig í, við fyrri framlagningar þessa máls, að við þingmenn hefðum ekki aðgang að sjónarmiðum Íslands hvað varnir varðar gagnvart athugasemdum ESA. Hvernig áttum við raunverulega að eiga það samtal sem nauðsynlegt var þegar þeir einu sem höfðu fengið að sjá þessi plögg voru nefndarmenn í utanríkismálanefnd, bundnir trúnaði? Það gerir ekkert gagn fyrir okkur almenna þingmenn sem þurfum að taka afstöðu til málsins hér í þingsal og erum þrátt fyrir allt mikill meiri hluti þeirra atkvæða sem hér skila sér í hús. Fulltrúar í utanríkismálanefnd eru níu. Þá eru eftir 54 þingmenn hér í salnum — 53, utanríkisráðherra er auðvitað þingmaður líka — 53 þingmenn hér í sal sem í öllum fyrri framlagningum þessa máls höfðu ekki aðgang að þessum upplýsingum. Í kringum þetta mál er búið að vera alveg ótrúlegt verklag hér á fyrri stigum, hreinlega alveg ótrúlegt. En þessi sjónarmið sem utanríkisráðherra þess tíma hélt til haga með mjög ákveðnum hætti, vel fram sett, eiga mikið erindi inn í þessa umræðu.
Mér þótti áhugaverð sú afstaða fyrrverandi hæstv. utanríkisráðherra, núverandi hv. þm. Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, sem kom fram hér áðan í andsvari, að í raun, ef ég skildi þingmanninn rétt, hefðu þau rök sem voru fram sett í þessum bréfaskriftum í heild sinni úrelst með dómi Hæstaréttar. Það er atriði sem ég veit að hv. þm. Sigríður Andersen mun fara yfir síðar í umræðunni og ég mun vafalaust að einhverju marki sjálfur koma að afstöðu til þess tiltekna sjónarmiðs. En þarna, 30. apríl 2021, má segja að kjarnarökstuðningurinn sé settur fram í 24 blaðsíðna svari til ESA. Það vekur undrun mína að þingmenn líti svo á að þær varnir hafi í einu lagi úrelst með dómi Hæstaréttar, sérstaklega með tilliti til m.a. nýlegrar blaðagreinar þess efnis þar sem önnur mynd er teiknuð upp. Fleiri hafa svo sem haldið fram þeim sjónarmiðum að sá skilningur sé að nokkru marki á misskilningi byggður.
Að einhverju marki mun ég sömuleiðis fara yfir — það er spurning hversu djúpt ég fer í það, en það getur auðvitað haft töluvert skemmtanagildi þegar þingmenn hitta sjálfa sig fyrir komnir í ríkisstjórn og hitta fyrir sama þingmann sem áður sat í stjórnarandstöðu. Það er ekki útilokað að Flokkur fólksins muni bjóða okkur upp á [Kliður í þingsal.] nokkra skemmtun í þeirri samantekt en það gætu orðið fleiri sem legðu eitthvað til í púkkið í þeim efnum. En af því að hv. þm. Sigurjón Þórðarson kom í andsvar áðan og talaði um hvort það væri ekki mikilvægt að geta skipt um skoðun, að menn hlustuðu á rök og breyttu afstöðu sinni til mála ef til þess bær rök kæmu fram. Það er fínt, ég er mjög fylgjandi því. En það sem hv. þm. Sigurjón Þórðarson — bara svo ég taki smá forskot á sæluna varðandi þennan hluta ræðuhalda minna — þá gleymdi hv. þm. Sigurjón Þórðarson því algerlega að umskipti flokks Flokks fólksins urðu ekki sem hluti af samtali um Evrópureglur, bókun 35 og þess háttar hluti, heldur urðu umskiptin yfir nótt í tengslum við það að Flokkur fólksins kom inn í ríkisstjórn. Þá voru engin samtöl þarna á milli. Það var engin umræða um þessi mál í samfélaginu og alls ekki nein umræða sem þingmenn Flokks fólksins tóku þátt í, að því er virðist. Umskipti Flokks fólksins voru því ekki grundvölluð á málefnalegri umræðu eða greiningu á því hvaða áhrif téður hæstaréttardómur hafði í samhengi við til að mynda sjónarmið stjórnvalda fyrir hönd Íslands á árinu 2021, bara alls ekki. Þar voru bara önnur sjónarmið undir og maður getur haft pólitískan skilning á þeim. En þá eiga menn bara að segja það að þetta var bara gjaldið fyrir það að komast inn í ríkisstjórnina sem nú situr við völd: Við í Flokki fólksins gáfum eftir öll sjónarmið okkar í Evrópumálunum. Segið það bara og þá er það bara frá. Það er hægt að hafa skilning á því þó að það sé kannski — miðað við hversu mikla áherslu þingmenn Flokks fólksins lögðu á þessi mál, akkúrat þessi mál, ég bara man varla eftir því að hæstv. ráðherra samgöngumála hafi opnað munninn öðruvísi en að hrakyrðast í garð þeirra áforma sem hér eru framsett þótt allt önnur mál hafi verið til umræðu. Hæstv. ráðherra, núverandi og fyrrverandi þingmaður, hafði skoðun á bókun 35 í samhengi við næstum því allt. Nú er það breytt. Sama á við um formann flokksins, hæstv. ráðherra Ingu Sæland og fleiri þingmenn Flokks fólksins og ég mun taka smá tíma — af því ég veit að það er nóg til og meira frammi — í að ramma þetta inn, bara til að halda til haga þessum umskiptum sem urðu þarna.
Síðan er auðvitað ekki annað hægt en að fara að hluta til í gegnum þær umsagnir sem fyrir liggja og þær greinar sem ritaðar hafa verið um þessi mál. Þar þurfum við í mínum huga alltaf að hafa í forgangi að líta til þess að forðast það ef nokkur kostur er að reka hornin í stjórnarskrá Íslands, lýðveldisstjórnarskrána. Það finnst mér skipta gríðarlega miklu máli í þessu samhengi og sú hugsun þarf að vera með okkur sem hér störfum í öllu samhengi þessa máls þegar lagt er til að hér séu samþykkt lög sem segja, með leyfi forseta:
„Ef skýrt og óskilyrt lagaákvæði sem réttilega innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES-samningnum er ósamrýmanlegt öðru almennu lagaákvæði skal hið fyrrnefnda ganga framar, nema Alþingi hafi mælt fyrir um annað. Sama á við um skuldbindingar sem eru innleiddar með stjórnvaldsfyrirmælum ef þau eru ósamrýmanleg öðrum stjórnvaldsfyrirmælum.“
Þegar lagt er til að texti sem þessi sé leiddur í lög verðum við að hafa það í huga að reka ekki hornin í stjórnarskrána. Þar finnst mér að stjórnarskráin eigi að njóta vafans ef einhver vafi er uppi. Ég mun síðan — af því tíminn er að hlaupa frá mér núna — fara að nokkru marki inn í þau sjónarmið er varða samspil reglna sem búnar eru til hér heima — því að allir hér inni átta sig á hvað ég er að fara í þeim efnum — og þess regluverks sem kemur frá Brussel. (Forseti hringir.) Eins með áhersluna og hvernig við vinnum ESS-innleiðingarnar hér heima. Ég held að við hljótum flest að vera sammála um að þær fá oft á tíðum aðeins aðra verkun hér í þinginu (Forseti hringir.) en sú löggjöf sem á uppruna sinn hér heima, hvort sem það er í ráðuneytum eða í þinginu.
Virðulegur forseti. Ég vil biðja þig um að setja mig aftur á mælendaskrá.