Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að stikla á stóru. Það er margt sem við eigum inni í þessari umræðu sem er ósagt og annað hefur verið sagt mjög oft. Ég hnaut um það að hv. þingmaður talaði um að við værum ekki að nýta þau verkfæri sem EES-samningurinn byði okkur upp á til að tryggja fulla virkni fjórfrelsisins og EES-samningsins í heild sinni. Þótt tíminn sé skammur langar mig til að hann minnist á þau verkfæri sem við eigum vannýtt. Ef samningurinn er honum mikilvægur, eins og hv. þingmaður kom inn á, þá er mjög mikilvægt að það komi fram. Að sama skapi vil ég líka spyrja hv. þingmann hvort hann sé því sammála að samningurinn eigi að virka með sama hætti og gerist t.d. í Noregi, í því skyni að full virkni sé tryggð til handa einstaklingum og lögaðilum hér á landi með sama hætti og þar í landi. Hvernig eigum við þá að fara að því án þess að taka sérstaklega tillit til þeirrar forgangsreglu sem gildir í EES-rétti?