Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir svarið. Ég hef áhyggjur vegna þess að ég held að það sé einsýnt í málflutningi Miðflokksins í þessu máli að þingmenn flokksins þekki ekki muninn á almennri forgangsreglu EES-réttarins, sem er við lýði í Noregi og var forsenda fyrir því að við innleiddum samninginn með þeim hætti sem við gerðum í upphafi tíunda áratugarins; að þeir þekki ekki muninn á þeirri forgangsreglu og beinum réttaráhrifum ESB-réttarins. Getur hv. þingmaður útskýrt fyrir mér muninn á þessu tvennu? Áttar hv. þingmaður sig á því að 102. gr. EES-samningsins byggist á þessari almennu forgangsreglu EES-réttarins en ekki beinum réttaráhrifum? Þekkir hann muninn á þessu tvennu?