156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[12:25]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg rétt. En það sem ég er að kalla eftir er þetta: Ef dómstóll að utan kæmist að þeirri niðurstöðu að bregðast þyrfti við og gera breytingar á íslensku lögunum um Evrópska efnahagssvæðið, væri hv. þingmaður þá líklegri til að samþykkja einhvers konar frumvarp sem myndi uppfylla sams konar efni og er í þessu frumvarpi? Ég spyr hvort hv. þingmanni liði betur með það, þ.e. þegar fólkið í Brussel hefði sagt að við þyrftum að gera þetta, en honum líður núna þegar málið fer fyrir löggjafarvaldið og m.a. með vísan í afdráttarlausa niðurstöðu Hæstaréttar með fullskipuðum dómi. Myndi hv. þingmanni líða betur með að samþykkja frumvarpið þegar niðurstaða yrði komin að utan en þegar frumvarpið er hér til meðferðar til að bregðast við niðurstöðu æðsta dómstóls á Íslandi?