156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[12:26]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka andsvarið. Ég held að við séum að einhverju marki að nálgast þetta í rangri röð. Ég held að ef þetta yrði niðurstaðan fyrir dómstóli væri fremst í röðinni að við þyrftum að gera breytingu á stjórnarskrá Íslands. Ég held að það þyrfti að koma til svo að við værum fær um að innleiða mál eins og það sem hér liggur fyrir, burt séð frá smáatriðum í útfærslu þegar þar að kemur. (Gripið fram í: Myndi hv. þingmaður styðja …?) Myndi ég styðja breytingu á stjórnarskrá Íslands? (Gripið fram í: Já.) Hér er framhaldsandsvar: Meira að segja í auglýsingum í dagblöðum hef ég lýst yfir stuðningi við gömlu góðu lýðveldisstjórnarskrána eins og hún er (Gripið fram í: Dönsku. ) — dönsku segir hv. þingmaður, ég er að tala um íslensku lýðveldisstjórnarskrána. Ég vil að breytingar á henni gerist hægt en engu að síður verða breytingar og þróun. En ég held að við eigum ekki að flýta okkur í þeim efnum. (Forseti hringir.) Ég hugsa að ég hafi verið með hörðustu andstæðingum þess dellumix sem hér var viðhaft árum saman (Forseti hringir.) undir heitinu „ný stjórnarskrá“ eða eitthvað svoleiðis, það var alveg galin nálgun. En látum það nú liggja á milli hluta. (Forseti hringir.) Ég held að fremst í röðinni væri að boða breytingar á stjórnarskrá til að bregðast við mögulegri niðurstöðu dómstólsins úti, ef það yrði niðurstaðan.