156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[12:27]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmanninum fyrir ræðu sína. Ég ætla ekki að leggja út í miklar skylmingar um álitamál varðandi stjórnarskrá þar sem mér sýnist sýnt að þingmaðurinn eða hluti Alþingis ætli ekki að horfa til bæði skýrrar niðurstöðu Hæstaréttar og viðhorfa forseta Hæstaréttar eða þeirra lögfræðilegu álita sem liggja fyrir hér og eiga að svara því beint. Ég ætla að fara aðeins með þetta niður á hið daglega líf, því að afstaða þingmannsins tekur ekki stöðu með litla manninum sem á rétt samkvæmt lögum á Evrópska efnahagssvæðinu. Þingmaðurinn virðist vilja senda málið til dómstóla vitandi það að íslenskum dómstólum er örðugt að dæma í þágu (Forseti hringir.) litla mannsins eða litla fyrirtækisins sem fær ekki rétti sínum framgengt vegna þess að hér er verið að skylmast í þingsölum, (Forseti hringir.) að mér finnst, án góðrar ástæðu og án góðra raka.