156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[12:34]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ásthildi Lóu Þórsdóttur fyrir andsvarið. Ég er ekki að tala um það í neinu samhengi að leita til EFTA-dómstólsins. Málið ratar auðvitað þangað ef til þess bærir aðilar vísa því þangað. Þannig að það er á misskilningi byggt. Við getum til að mynda rifjað upp mál sem fór þangað sem hverfðist um niðurstöðu Icesave-málsins. Það hafa því ekki alltaf verið innihaldslausar ferðir sem þangað hafa verið farnar. Þar er auðvitað mikill fjöldi mála kveðinn upp á grundvelli dagsetninga og mjög tæknilegra atriða sem litlar varnir fást við. En þarna sýnist mér á öllu að sú niðurstaða sem gæti fengist væri, ef allt færi á versta veg fyrir EFTA-dómstólnum, á svipuðum nótum og ríkisstjórnin leggur nú til.