Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Já, það er rétt að yfirleitt koma góðar niðurstöður, t.d. fyrir neytendur, frá EFTA-dómstólnum en það er einmitt það sem málið snýst um. Dómstólar á Íslandi hafa bara getað hunsað Evrópulöggjöf, t.d. fyrir neytendur, sem er þeim mikið til hagsbóta, og látið eins og hún sé ekki til og dæmt út frá miklu verri lögum fyrir neytendur sem hefur virkilega slæm áhrif og ég ætla bara að nefna hrunið sem dæmi um það. Ég var ein af þeim mörg þúsundum sem misstu heimili sín einmitt af því að ekki var búið að innleiða bókun 35 með réttum hætti. Það er bara þannig. Ég næ ekki þessu samhengi, að það eigi frekar að láta þetta fara til EFTA-dómstólsins, sem er úti í Evrópu, og fá jafnvel í einstökum málum einhvern úrskurð frá honum, sem er reyndar alltaf á okkar veg, eða hefur verið á veg neytenda, en svo koma dómstólar sem finna glufur, finna íslensku lögin og láta þau frekar gilda. Ég vil frekar (Forseti hringir.) að Alþingi fjalli um lögin og við setjum þau inn og þau gildi.