156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[12:37]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Dómstólar dæma auðvitað bara á grundvelli gildandi réttar. Þannig er það og þannig á það að vera. (Gripið fram í.) Það er þannig,

(Forseti (ÞSv): Hann er með orðið. )

hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, að skýrleiki laga og lagaheimilda skiptir máli. Ég hef áhyggjur af því að í þessu máli, með þessari teppalagningu yfir gildandi innlendan rétt með reglum af færibandinu frá Brussel, verði mun erfiðara fyrir almenning hér eftir en hingað til að glöggva sig á gildandi rétti. Ég er mjög efins um að þessi sjónarmið hv. þingmanns gangi upp; að hér verði allt eins og blómstrið eina og það verði eingöngu réttindi sem þetta færi borgurunum, því það verður drjúgt af skyldum sem ekki er víst að verði sama stemning fyrir að undirgangast þegar á reynir, miðað við það hvernig málið lítur út núna.