Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir mjög góða spurningu og áhugaverða í því ljósi að ég er ekki sammála honum í því að það hefði þurft að gera eitthvað lengra eða öðruvísi. En þetta er mjög góður punktur til að ræða almennt um nefndarálit og sérstaklega í þessu máli vegna þess að þetta mál er flókið mál. Lögfræðingar hafa á báða bóga bent á kosti og galla. Við í Miðflokknum hefðum auðveldlega getað gert þetta upp á tugi síðna með lagaálitum. Þau liggja fyrir. Þetta plagg, nefndarálitið, þykir mér yfirburðagott. Það er langt en reynir engu að síður, á mannamáli fyrir almenning, að ná utan um það af hverju Miðflokkurinn er ekki hlynntur þessu. Við gætum hafa sett inn lagaálitin sem við tengjum við. Ég veit ekki hvort það hefði skilað einhverju betra inn í þetta nefndarálit. Þannig að nei, mér finnst ekki að það hefði átt að vera eitthvað öðruvísi, mér finnst það einmitt hafa átt að vera svona skýrt og auðlesið fyrir fólk. En ég hef fullan skilning á því að hv. þingmaður sé því ósammála. Ég hef líka fullan skilning á því að nefndarálitið sem hann vann, eða meiri hlutinn vann fyrir frumvarpið, sé með öðrum hætti. Ég get alveg skilið það en stundum megum við kannski tjá okkur á aðeins meira mannamáli þannig að það sé auðveldara fyrir fólk að glöggva sig á hvað við gerum hér.