Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Þar er ég bara ósammála hv. þingmanni og ég tek fram að mér fannst álitið um þriðja orkupakkann betra og sterkara en þetta. Það er líka dálítið skrýtið að segja að þetta, sem er nefndarálit á heimasíðu Alþingis, verði að vera á mannamáli og síðan ætli menn að koma í þingsalinn og færa fram öll lögfræðilegu og flóknu rökin. Mér fyndist það eiga að vera á hinn veginn, að í þessu skjali ætti lögfræðilega röksemdafærslan að vera og síðan gætu menn talað á mannamáli hér í þingsal því að hér erum við að ræða við almenning þar sem allir hlusta.
Hv. þingmaður sagði að enginn í þessum sal myndi vísvitandi vilja brjóta stjórnarskrá Íslands. Þá langar mig einfaldlega að spyrja: Er það mat hennar að þetta frumvarp, sem var samið af ákveðnum starfshópi, sem við vitum að í sat líka fólk sem í dag eru þingmenn Miðflokksins, feli í sér brot á stjórnarskrá Íslands?