156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[13:04]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég er sammála hv. þm. Pawel Bartoszek að í þessum þingsal, og sérstaklega í svona málum, ættum við að tala á mannamáli. Við erum alveg sammála um það. Það erum við sammála um en hvort þetta nefndarálit hafi verið of mikið á mannamáli og svo hefði ekki átt að vera — okkur greinir kannski á um það. Hér er búið að nota mjög lagatæknilegt mál og það þarf auðvitað líka en reynum endilega að tala á meira mannamáli hér inni. Varðandi þetta frumvarp sem hv. þingmaður nefnir að hv. þingmenn Miðflokksins hafi komið að — hún er búin að svara mjög vel fyrir það að hún var bara að vinna ákveðna vinnu. Það sem ég er að segja: Stjórnarskráin á að fá að njóta vafans og ef það er vilji þingsins að gera þetta þá þarf að byrja á að breyta stjórnarskránni þannig að frumvarpið geti kannski orðið að veruleika. En við þurfum að byrja á réttum enda. Það er það sem við erum að halda fram og segja.