156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[13:05]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, þetta er eitt af þeim málum sem hefur fengið mikla athygli í gegnum missirin og menn greinir á um. Ég skal alveg viðurkenna það, hafandi ekki verið hér á þingi á síðasta kjörtímabili en auðvitað mikil áhugamanneskja um stjórnmál, að maður hefur átt erfitt með að mynda sér grjótharða afstöðu. Það er svo margt í máli þeirra sem eru andsnúnir sem maður getur tekið undir og svo með þeim sem vilja þessu framgang. Þetta er náttúrlega gríðarlega lagalega tæknilega flókið mál og fyrir leikmann þá — já, þetta snýst fyrst og fremst um það að reyna að skilja lagalegu þætti málsins til að geta myndað sér lokaafstöðu.

Ég vil annars þakka hv. þingmanni fyrir ágætisyfirferð og góða ræðu áðan. Það er margt sem maður getur tekið undir en ef þingmaðurinn gæti kannski útskýrt það aðeins nánar — það sem maður hefur líka hlustað á er að Hæstiréttur hafi kveðið þann úrskurð upp með skýrum hætti að Íslendingar innleiddu EES-samninginn ekki rétt — hvort það sé ekki fullnægjandi að mati þingmannsins og þeirra sem eru andsnúnir þessu, að æðsti dómstóll landsins hafi kveðið upp sinn dóm? Hann gæti kannski útskýrt það aðeins nánar fyrir þeim sem eru að reyna að átta sig á hlutunum.