156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[13:07]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Rósu Guðbjartsdóttur fyrir andsvarið. Eins og hefur komið fram áður, þá kvað Hæstiréttur upp þann dóm að það væri ekki hægt að vísa í bókun 35. Það var kannski viljandi gert á sínum tíma, eins og ég fór aðeins yfir áðan, hvernig við innleiddum bókun 35, þannig að hann er ekkert að kveða upp dóm um hvað við eigum að gera varðandi bókun 35. Varðandi það mál sem var til umræðu hjá Hæstarétti þá vek ég athygli á, og ég trúi að það komi fram í ræðu á eftir, að í nýútkominni grein í Tímariti lögfræðinga er fjallað um þennan dóm og það er örugglega áhugavert að gefa sér tíma í að lesa hann, þar er dómurinn reifaður. Hæstiréttur er ekkert að segja að við eigum að samþykkja þetta, þannig að ég hef kannski ekkert áhyggjur af því.

Ég get líka tekið undir það með hv. þingmanni að ég var kannski ekkert mjög mikið inni í þessu áður en ég fór á þing en hafði sterkar skoðanir, þetta snerti strengi og ég ákvað því að skoða málið vel. Mér hefur þótt gott að umræðan hér í þingsal fari fram, það er búið að ná að einfalda málið, finnst mér, og að lokum þá finnst mér að það sé ekki yfir vafa hafið að við gætum verið að brjóta stjórnarskrá með þessu og þess vegna held ég að við þurfum að fara hægt og bíða með þetta.