Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Jú, ég tel að öll lög sem við innleiðum hér á Alþingi séu íslensk, hvort sem það eru gerðir eða lög sem við semjum hér; ef ég skil rétt það sem hv. þingmaður er að spyrja um. Jú, vissulega. En það er óeðlilegt að reglugerðirnar frá Evrópusambandinu eigi að gilda framar þegar eitthvert ósamræmi eða vafi er uppi. Fyrir utan það að ég er sammála því að það brjóti á stjórnarskránni þá heyrir maður bara að það er óeðlilegt. Af hverju ætti það að vera þannig? Það er ekki eins og við séum ekki að virða samninginn, það er ekki eins og þetta gerist oft. Þetta er bara í einhverjum einstaka tilfellum og það getur verið á báða bóga þannig að íslensk lög geta verndað litla manninn. Við höfum kannski viljandi gert það en við þurfum alltaf að passa okkur hvernig við setjum lögin ef þetta yrði samþykkt. Þó að þetta hafi verið á hinn veginn í umræddu fæðingarorlofsmáli þá er það ekki þannig að þetta sé alltaf að bitna á fólki.