Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Það kom nokkuð á óvart að hún skyldi vilja fresta þessu frumvarpi í ljósi litla mannsins. Ef maður horfir á framgöngu Miðflokksins í þinginu, m.a. þegar komið er að því litla frelsi sem er í fiskveiðistjórnarkerfinu, þá hefur Miðflokkurinn lýst yfir mikilli andstöðu við það og jafnvel andstyggð. Þannig að það kemur á óvart. Síðan þegar hér er rætt um réttindi fatlaðs fólks og að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna er þeim erindum ekki tekið fagnandi, miklu frekar hitt. Það er andstaða gegn þessu þannig að litli maðurinn á ekki mikið skjól hjá Miðflokknum ef maður skoðar málið ofan í kjölinn.
Til að kynna mér nánar afstöðu Miðflokksins í þessu máli las ég þetta ágæta nefndarálit sem ekki er mjög langt. Þar kemur ekki fram hvort flokkurinn styðji þennan samning um Evrópska efnahagssvæðið sem bókunin er víst hluti af og á að tryggja það að samningurinn haldi. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann styðji þennan samning um Evrópska efnahagssvæðið eða vilji taka hann upp. Ef þetta er lesið og hlustað á ræður hér þá er mikill fyrirvari og má jafnvel glitta í það að menn vilji taka samninginn algerlega upp og skoða hlutina upp á nýtt hvað það varðar.