Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að koma hér í aðra ræðu við þessa 2. umræðu og ræða þetta stóra mál. Þetta er auðvitað ákaflega lögfræðilegt. Mér hefur þótt umræðan markast af skiljanlegum misskilningi. Þetta er tyrfið mál og þótt kallað hafi verið eftir alls konar minnisblöðum frá fræðingum hafa fæstir þeirra nú gert nokkurn skapaðan hlut til að auka á lesskilning manna eða liðka fyrir einföldun í umræðu um þessi mál; án þess að ég ætli að kenna þeim um það, það er kannski hægara sagt en gert að einfalda málið.
En mig langar þó aðeins að fjalla um þennan dóm, nýfallinn dóm um Fæðingarorlofssjóð, sem er svo margnefndur hér í þessari umræðu. Mér hefur fundist bera á því að menn dragi allt of víðtækar ályktanir af dómnum og hreinlega misskilji hvað felist í honum. Hér voru lög um Fæðingarorlofssjóð sem kváðu á um að sett skyldi reglugerð um reiknireglu um fæðingarorlofsgreiðslur. Þessi reglugerð var sett og um leið var með þessari íslensku reglugerð innleidd reglugerð Evrópusambandsins um reikniregluna. Hins vegar var þessi íslenska reglugerð í ósamræmi við íslensku lögin. Þar stóð hnífurinn í kúnni. Hæstiréttur leysti úr þessu máli með vísan til þeirra forgangsreglna í íslenskum rétti að lög séu æðri reglugerðum. Þannig þyrfti að líta til laganna sjálfra en ekki reglugerðarinnar sem var alveg réttilega innleidd í þennan rétt, efnislega og að formi. Þannig kom ekki til skoðunar einhver forgangsregla Evrópureglugerðarinnar.
Þetta á ekki að koma nokkrum manni á óvart. Þetta er algerlega í samræmi við alla framkvæmd og dómafordæmi Hæstaréttar í málum af þessum toga sem hafa verið þó nokkur. Það sem skilur á milli þeirra flestra er að þau eru ekki öll alveg sambærileg. En þetta er sjónarmið sem Hæstiréttur hefur haft og flestir ef ekki allir lögfræðingar landsins þegar kemur að forgangsreglu íslensks réttar. Hæstiréttur vísaði í það að bókun 35 hefði ekki verið innleidd þannig að veita ætti ESB-reglum forgangsáhrif hér. Það er heldur ekkert nýtt. Hins vegar vísaði Hæstiréttur til þess að menn hefðu hér á landi í íslenskum lögum veitt erlendum reglum forgang en það er hins vegar með allt öðrum hætti en þetta frumvarp fjallar um. Ég tek sem dæmi, og Hæstiréttur gerir það líka, lög um ársreikninga sem kveða sérstaklega á um að nota skuli alþjóðlega reikningsskilastaðla og verði þeir einhvern tíma í ósamræmi við íslensk lög þá gildi hinir alþjóðlegu reikningsskilastaðlar. En þetta á við á afmörkuðum sviðum, tilgreindum sviðum, og á ekki almennt við um alla löggjöf heldur er þarna komin sérstök regla á sérstöku sviði.
Dómur Hæstaréttar frá árinu 2002 er eini dómurinn sem viðurkenndi beitingu annars konar forgangsreglna en þeirra sem ég hef nefnt hér, þ.e. forgangsreglna sem byggja á sérreglusjónarmiðunum. Í þeim dómi viðurkenndi Hæstiréttur að regla EES-réttarins, sem var reyndar beinlínis ákvæði úr EES-samningnum, sem hafði þá í sjálfu sér nýlega verið tekinn í lög — þetta var árið 2002, þá viðurkenndi rétturinn að regla EES-réttar gæti talist sérregla gagnvart íslenskum lögum en þó þannig að það var líka ýjað að því að hefði EES-rétturinn að geyma ákvæði sem réttlætti frávik frá EES-reglunni hefði mátt færa rök fyrir því að Íslenska reglan hefði ekki vikið fyrir 14. gr. EES-samningsins sem þarna var fjallað um.
Ef ég kjarna hér fæðingarorlofsmálið örlítið þá hefði mátt leysa það með því að setja þau ákvæði sem voru sett í íslensku reglugerðina inn í lögin sjálf, það hefði mátt gera það, eða með því að breyta lögunum til samræmis við reglugerðina. Það fór ekki saman, eins og menn segja gjarnan, hljóð og mynd, þ.e. íslensku lögin og íslenska reglugerðin sem sett var með stoð í þessum lögum. Þarna hefði kannski mátt segja að stjórnsýslan, Stjórnarráðið sem setti reglugerðina, framkvæmdarvaldið, hefði átt að kanna betur hvernig það samræmdist lögunum sjálfum. Þannig, svo að ég árétti það, eru ályktanir sem menn hafa verið að draga af dómi Hæstaréttar allt of víðtækar miðað við efni dómsins og önnur dómafordæmi. Það er enginn ágreiningur um það að hér á landi gildir forgangsregla Evrópusambandsréttarins ekki af því að við innleiddum hana að yfirlögðu ráði með 3. gr. og beittum fyrir okkur túlkunarreglum þannig að íslensk lög yrðu túlkuð til samræmis við Evrópusambandsréttinn, eða EES-réttinn öllu heldur, en ekki þannig að EES-rétturinn hefði sjálfkrafa forgang umfram íslensk ákvæði. Þetta var gert með vísan til stjórnarskrárinnar sem leyfir það hreinlega ekki.
Stjórnarskráin gerir ekki ráð fyrir því að löggjafinn geti í eitt skipti fyrir öll stillt almennum lögum upp í mismunandi rétthæðir umfram þær forgangsreglur sem íslenskt réttarfar byggir á, sem ég hef vikið að áður, eins og að sérlög ganga framar almennum lögum, yngri framar eldri. Með þessum hætti er rétthæð réttarheimilda — þ.e. lög ganga framar reglugerðum. Þetta hefur verið meginstef í íslensku réttarfari þótt menn séu að reyna núna að fara einhvern veginn í kringum þessa hugmynd, sem ég held að Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, kjarni ágætlega í grein árið 2014. Vegna þess að menn vita að það er erfitt að breyta stjórnarskránni en menn vilja losna við skeytasendingar frá Evrópusambandinu, þá eru menn með þessu frumvarpi að reyna að fara fram hjá þessu. Ég tel það ekki tækt. Ég skil að menn séu kannski þreyttir á einhverjum svona skeytasendingum. Hins vegar er það þannig að þessi mál eru auðvitað ekkert eðlisólík öðrum ágreiningi sem kemur upp hér daglega í íslensku lagasamhengi, þ.e. að það er ágreiningur um túlkun íslenskra laga og reglna og það þarf ekki EES-réttinn til þess. Eins og málastabbi og málaþungi íslenskra dómstóla bendir til eru Íslendingar ekki latir til lagalegra deilna fyrir dómstólum; þarf ekki Evrópusambandið til.
Ég vil að lokum nefna — reyndar gefur tími þessarar umræðu hér í dag ekki tækifæri til að fara djúpt ofan í lagaleg álitaefni í þessum efnum — hér nýútkomna grein í tímariti lögfræðinga, að ég held brakandi heita úr prentvélinni, og vekja athygli hv. þingmanna á henni. Það er grein eftir dr. Arnór Ástvaldsson, lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, og dr. Hafstein Dan Kristjánsson sem einnig er prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Í greininni virðast þeir setja fram nálgun á álitaefni sem Hæstiréttur stóð frammi fyrir í þessu máli sem ég hef reifað hér, þ.e. þann samanburð á rétthæð annars vegar skýrra ákvæða laga Fæðingarorlofssjóðs og viðeigandi reglugerða sem innleiddu reglur EES um útreikning greiðslnanna og hins vegar ákvæða um þennan útreikning í reglugerð ESB. Þeir eru sem sagt að fjalla um þetta sérstaklega. Í þessari grein færa höfundar rök fyrir því — ég ætla reyndar að taka það fram að ég hef ekki lúslesið þessa grein, hún er nýútkomin en ég hef skautað yfir hana. Ég vek athygli hv. þingmanna á þessu en þeir virðast færa rök fyrir því að Hæstiréttur hefði getað leyst úr málinu á annan hátt án þess að vikið væri frá forgangsreglum íslensks réttar. Þannig virðast höfundarnir halda því fram að það mætti beita EES-reglum um fjórfrelsið sem sérlögum gagnvart almennum íslenskum lögum eins og í dómnum sem ég nefndi hér fyrr frá árinu 2002 í máli Harðar Einarssonar, menn þekkja það. Þannig að hér er a.m.k. áhugaverð greining á þessu og tvímælalaust innlegg í þessa umræðu sem Alþingi þarf að skoða. Náist að klára það hér nú þá myndi ég mælast til þess að málið fari aftur í nefnd og menn tækju sérstaklega skoðun á þessari áhugaverðu grein án þess að ég taki sérstaklega afstöðu til niðurstöðu greinarinnar.