Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir svarið. Mig langar að halda aðeins áfram í þessum vangaveltum því að mér þykir þetta í rauninni áhugavert, ja, mögulega lögfræðilegt úrlausnarefni, kannski ekki, en ég veit að hv. þingmaður er löglærð. Fyrir mér gengur illa upp að hafa annars vegar lofað því að virða stjórnarskrána og allt það sem í henni stendur og hins vegar að segja að eitthvert mál sem er hér til atkvæða brjóti þá stjórnarskrá. Það er þar með ekki í huga og sannfæringu þingmanns að verja þá stjórnarskrá — að hann muni síðan mögulega vera á græna takkanum út af stjórnarsamstarfi eða einhverju samkomulagi eða einhverju slíku, sem í mínum huga hlýtur að vera réttlægra heldur en sá skýri drengskapareiður sem við verðum öll að undirrita hér um að verja stjórnarskrá. Að vera á sama tíma að greiða atkvæði hér í þingsal með máli sem þú telur klárt og kvitt að brjóti þá stjórnarskrá gengur í mínum huga ekki upp. Og kannski það að hafa skoðanir einhvers staðar hér á göngunum eða jafnvel í pontu — það er allt í lagi að velta vöngum yfir málum. En mig langar að heyra álit hv. þingmanns á því hvort það gangi upp að undirrita drengskaparheit þar sem segir: Ég lofa að verja stjórnarskrána, en greiða síðan atkvæði með máli sem þú telur að brjóti sömu stjórnarskrá.