Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[13:39]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir sína ræðu. Mig langar til að spyrja hana tveggja spurninga. Í fyrsta lagi snýr það að því hvernig við komumst á þennan stað, af því að ég veit að hv. þingmaður þekkir söguna vel í þessu máli. Hvort hv. þingmaður gæti farið dálítið yfir hvernig innleiðingin var í upphafi og hvað hefur í raun og veru ýtt á það að við séum í þessari stöðu nú. Ég held að það sé mikilvægt fyrir fólk að skilja, þegar við erum að tala um svona gamlan, mikilvægan viðskiptasamning, hvað breyttist á leiðinni þegar það metur mikilvægi þessa máls.