Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:06]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Pawel Bartoszek) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hans ræðu. Mig langar að byrja á að spyrja hvort hann hafi lesið grein Markúsar Sigurbjörnssonar af því að mér finnst margir þingmenn koma og vitna í ákveðna búta en ég er að velta fyrir mér hvort þeir átti sig á heildarsamhengi þeirrar greinar og hvort honum finnist að þessi tilvitnun sé það markverðasta og sé þungamiðjan í þeirri grein eða hvort það séu einhverjir aðrir hlutir sem hann tók eftir sem hann vildi segja.

Í öðru lagi langar mig að nefna það að bókun 35 er svohljóðandi, með leyfi forseta: „Vegna tilvika þar sem getur komið til árekstra á milli EES-reglna sem komnar eru til framkvæmdar og annarra settra laga, skuldbinda EFTA-ríkin sig til að setja, ef þörf krefur, lagaákvæði þess efnis að EES-reglur gildi í þeim tilvikum.“

Þetta er það sem við höfum sagt út á við. Inn á við þá hefur okkar eigin dómstóll sagt: „Þannig hefur ekki verið lagt til grundvallar að það ákvæði feli í sér almenna forgangsreglu í samræmi við bókun 35 við samninginn.“ Út á við höfum við því sagt að við ætlum að gera þetta, inn á við hefur okkar eigin dómstóll sagt að við höfum ekki gert þetta nægilega vel. Mér finnst það borðleggjandi að það kalli á einhver viðbrögð. Mér finnst ekki hægt að segja bara: Já, já, þetta hefur ekki verið vandamál í 35 ár vegna þess að við höfum ekki haft dóm Hæstaréttar, fullskipaðs Hæstaréttar, sem hefur sagt okkur þetta þessi ár. Mig langar því að þingmaðurinn bregðist við þessu, hvort hann telji ekki augljóst að það þurfi með einhverju móti að bregðast við dómi Hæstaréttar sem segir: Út á við höfum við sagt að við ætlum að gera eitthvað og inn á við þá hefur okkar æðsti dómstóll sagt: Við höfum ekki gert það með réttum hætti.