Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:08]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nei, ég viðurkenni það fúslega að ég hef ekki lesið grein Markúsar Sigurbjörnssonar í heild sinni í þessu afmælisriti frá 2014 en tel fullkomlega fært að byggja á mjög skýrum málflutningi, sem er þá hluti þessarar greinar þar sem er kveðið mjög skýrt á um það að hann telji að þær breytingar sem nú er lagt upp með, þ.e. að ganga lengra en núverandi ákvæði segja til um, að þær rúmist ekki innan stjórnarskrárinnar. Það er fyrrverandi forseti Hæstaréttar sem er einmitt sá réttur sem hv. þm. Pawel Bartoszek vill taka mark á núna, sem sagt hvetur til þess að Íslendingar fari þá að kveða skýrar á um þetta. Þetta er náttúrlega sama grunnheimild á endanum þó að þetta sé ekki dómur Hæstaréttar þegar Markús er að skrifa um þetta. Þegar kemur að dómi Hæstaréttar og hvaða skilaboð hann sendir íslenskum stjórnvöldum þá held ég að það sé ekki einhlítt að þetta séu skilaboðin — og dómar Hæstaréttar, það er kannski mjög erfitt að orða það þannig að þeir séu að senda stjórnvöldum eða löggjafarvaldinu ein eða önnur skilaboð. Ég tel ekki ljóst að þetta séu skilaboðin sem verið sé að senda, að við þurfum að gefa upp með svona afgerandi hætti forgang íslenskrar löggjafar gagnvart evrópskri löggjöf, nei.