Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Ég ætla þá að upplýsa þingmanninn og þingheim um það að ég gerði mér far um að komast í umrædda grein, óskaði eftir aðstoð upplýsingaþjónustu Alþingis sem benti mér á að þessi grein væri til á prentuðu máli á bókasafninu í Lögbergi þangað sem við sendum starfsmann Viðreisnar til að taka ljósrit af henni og dreifa til okkar, þannig að ég hef aðgang að henni. Greinin er í grunninn vangaveltur um í hvaða tilfellum sé rétt að íslenskir dómstólar leiti til EFTA-dómstólsins til að fá sjónarmið um ákveðin mál. En þetta kemur vissulega fyrir í inngangi þessa kafla, ég dreg ekkert úr því, en ég myndi samt ekki segja að þetta væri þungamiðjan í greininni. Þetta er, eins og hv. þingmaður sagði sjálfur, ekki Hæstaréttardómur, þetta er skoðun manns sem sat einu sinni í Hæstarétti.
Hins vegar langar mig að spyrja, vegna þess að þingmaðurinn sagði hér að þetta væri einhvers konar samsæri Evrópusinna um að koma okkur í Evrópusambandið. Er það samt ekki þannig að það var fyrri ríkisstjórn sem undirbjó þetta mál, þar sem sat ekki einn einasti flokkur sem hefur á stefnuskránni að koma landinu í Evrópusambandið? Við erum með (Forseti hringir.) umsögn frá Birni Bjarnasyni sem verður seint sakaður um að vera Evrópusinni. Hér stóð formaður Sjálfstæðisflokksins í gær og flutti nokkuð góða ræðu. Er ekki svolítið ómerkilegt að saka allt þetta fólk um vera laumu ESB-sinna þó ég(Forseti hringir.) sjálfur geti vel lifað undir þeim stimpli?