Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Hérna erum við kannski komin út í umræðu um það hvenær og á hvaða tímapunkti menn tala um og velja sér, ef við getum orðað það þannig, að koma út úr skápnum sem Evrópusambandssinnar. Ég held að margt fólk í mörgum flokkum styðji aðild að Evrópusambandinu, kannski mögulega meira en þeir vilja vera láta og gefa upp opinberlega með skýrum hætti. (PawB: Björn Bjarnason? )Nei, kannski ekki Björn Bjarnason en maður hefur alveg séð umræðuna breytast hjá mörgum í tengslum við aðild að Evrópusambandinu, ég held að það sé alveg ljóst þó að sumir hafi mun skýrari afstöðu til hennar en aðrir. Hins vegar gekk þetta mál ekki í gegn á vegum síðustu ríkisstjórnar. Hæstv. fyrrverandi utanríkisráðherra lagði það fram og hafði augljóslega markmið um að koma því í gegn en af einhverjum ástæðum gerðist það ekki. Hvaða ástæður eru fyrir því er mér ekki alveg ljóst. En núna virðist e.t.v. aðeins skýrari meiri hluti fyrir málinu á þessu stigi máls, alla vega í atkvæðum, en hvort hugmyndafræðin búi þar að baki endilega alltaf, það er önnur spurning.