Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:12]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir góða ræðu. Mig langar að forvitnast aðeins hjá honum, af því að mörgum hefur í þessari umræðu verið tíðrætt um að með bókun 35 sé verið að veita Evrópureglum forgang yfir íslensk lög. Frumvarpið tekur hins vegar skýrt fram að það taki bara til forgangs íslenskra laga sem hafa réttilega innleitt skuldbindingar okkar gagnvart EES. Sem sagt, bókun 35 á bara við þegar lög sett af Alþingi stangast á við önnur lög sett af Alþingi. Telur hv. þingmaður að lög sem sett eru á Alþingi séu þá ekki íslensk lög?