Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[14:24]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Þá er komið að því að hefja ræðu um bókun 35 svokallaða sem ég geri með mikilli ánægju og eftirvæntingu. Ég hef verið að hlusta á þá ræðumenn og þau andsvör sem hafa komið að einhverju leyti. Þar hefur ýmislegt komið fram og ég tel að umræðan hafi að mörgu leyti þroskast strax á þessum fáu klukkutímum sem liðnir eru í umræðunni. Hvað er hér um að ræða? Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 35, hvað erum við að ræða hér? Á mannamáli er efni frumvarpsins einfaldlega þannig að lagaákvæði sem innleiðir skuldbindingu samkvæmt EES hefur forgang gagnvart öðrum lögum. Þetta er á mannamáli það sem verið er að gera. Við erum að innleiða forgangsreglu, þ.e. að reglur Evrópusambandsins sem innleiddar hafa verið í íslensk lög hafa forgang gagnvart öðrum íslenskum lögum sem eru ósamrýmanleg. Það virðist standa í sumum að skilja og átta sig á þessu, sérstaklega þó að átta sig á því hvað í þessu felst nákvæmlega. Hvað felst nákvæmlega í þessu? Hvað erum við að tala um? Menn geta haldið ræðu í örugglega mjög margar klukkustundir án þess að komast að nokkurri sameiginlegri niðurstöðu um þetta. Þess vegna ætla ég að reyna að tala skýrt og tala mannamál svona að mestu leyti í minni ræðu.

Evrópulöggjöf er sem sagt veittur forgangur hér yfir önnur íslensk lög. Ég ætla að hafa þann fyrirvara á að það sé Evrópulöggjöf sem er innleidd hér, ég ætla að hafa það alveg skýrt líka. Hvað þýðir það í raun og veru? Einfaldlega það að þingmeirihluti á Alþingi sem samþykkir tiltekna löggjöf getur þurft, ef svo ber undir, að sætta sig við að Evrópulöggjöf sem hér hefur verið innleidd og fer í andstöðu við þessi nýju lög hreinlega ryðji þeirri löggjöf út þegar reynir á. Hvað þýðir það á mannamáli? Löggjafarvaldið er í raun tekið af Alþingi. Ég get ekki skilið þetta neitt öðruvísi. Ef við myndum samþykkja lög á morgun og svo eftir nokkur ár yrðu önnur lög metin hafa forgang, einhver lög frá Evrópusambandinu sem við hefðum kannski samþykkt áður, hvað þýðir það fyrir löggjafarvaldið? Hvað merkir það fyrir þingmeirihlutann sem samþykkti þessi lög? Verið er að taka löggjafarvaldið af réttkjörnum meiri hluta íslenska þjóðþingsins? Það þýðir á mannamáli að þingmenn sem samþykkja lög hér uppgötva það síðar að þau lög hafa ekki gildi af því að einhver önnur löggjöf, eldri löggjöf Evrópusambandsins sem við höfum innleitt, trompar þau. Breytingin sem þeir hugðust gera einhvers efnis, sem þeir ætluðu að lögfesta, hefur því ekkert gildi. Hvað þýðir það í raun og veru? Lagasetningarvald Alþingis í slíku tilviki er að engu orðið. Því er vikið til hliðar. Þetta er óheimilt að óbreyttri stjórnarskrá. Hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans og fleiri þingmenn í þessum sal verða að átta sig á þessu. Eru þetta ægilegar fréttir? Nei, þetta eru ekkert ægilegar fréttir, þetta þýðir bara raunverulega að menn þurfi að gera þetta svolítið öðruvísi, breyta aðeins um verklag. 1. málsliður 2. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi og forseti Íslands fara saman með löggjafarvaldið.“

Það sem þarf að gera, herra forseti, er að komast fram hjá þessari grein. Það verður ekki gert, og er afskaplega leitt að þurfa að segja það, nema breyta henni. Svona er nú sannleikurinn.

Hvað er til ráða? Við þessu eru nokkur ráð. Fyrsta ráðið er að við getum auðvitað haldið áfram að innleiða oft og tíðum ágæta löggjöf og við höfum gert mikið af því. Við getum haldið áfram að innleiða þessa löggjöf samkvæmt EES-samningnum. Við getum innleitt hana réttilega og veitt henni lagagildi hér á landi. Við getum gert það og íslenskur almenningur, íbúar þessa lands, getur notið þeirra réttinda sem löggjöfin kveður á um. Við getum áfram réttilega innleitt þessa löggjöf eins og við höfum gert og veitt íbúum þann rétt sem hún veitir. Þetta er fyrsta ráðið. Þetta höfum við gert en mörgum hefur ekki þótt nóg að gert. Þess vegna erum við nú að fjalla um þetta.

Í gildi er 3. gr. laga nr. 2/1993, svokölluð túlkunarregla við EES-samninginn, sem hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja.“

Það er meira að segja til regla, sem ég var að lesa upp, sem segir að það eigi að skýra Evrópureglur sem innleiddar hafa verið hér á Íslandi og að skýra eigi íslensk lög að svo miklu leyti sem hægt er til samræmis við EES-reglurnar sem hér hafa verið innleiddar. Þetta hefur dugað ágætlega oft og tíðum, þó ekki alltaf. Nú telja menn að þessi túlkunarregla sé ekki nægileg, það sé ekki nægilegt að íslensk lög séu túlkuð í samræmi við EES-samninginn og vilja ganga lengra og lögfesta þessa bókun um forgangsáhrif reglna EES-samningsins alfarið yfir íslensk lög ef þau eru ósamrýmanleg. Menn vilja ganga alla leið og innleiða forgangsregluna svokölluðu, þ.e. að lögfesta forgang EES-reglna sem byggjast á samningnum umfram íslensk lög, ef þau eru í andstöðu. Þetta var fyrsta uppástungan um hvað við getum gert: Innleiða betur og innleiða skýrar Evrópureglur. Við höfum reynt það en það hefur ekki alltaf tekist. Um það fjalla nokkrir dómar sem fjallað er um í greinargerð með frumvarpinu, þar sem árekstur verður. Einhverju sinni komust dómstólar að þeirri niðurstöðu að við gætum hreinlega ekki farið eftir þessum Evrópureglum vegna þess að íslensk lög hefðu verið framar, gengið lengra, og þess vegna ekki hægt að túlka íslensku lögin svo viðunandi væri.

Annar kostur er að taka til varna gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA í hugsanlegu samningsbrotamáli sem höfðað yrði gegn Íslandi hvað þetta varðar. Af hverju telja menn ekki fært að fara þá leið með því að leggja þetta frumvarp fram hér? Þetta er ekki í fyrsta sinn sem frumvarpið kemur fram, ég held það sé í þriðja eða fjórða skipti. Menn hafa því ekki viljað taka þá áhættu eða fara í þá vegferð að taka einfaldlega til varna gagnvart Eftirlitsstofnuninni og standa á fullveldinu hvað þetta varðar í samræmi við viðvaranir fjölmargra lögfróðra manna um að innleiðing á þessari reglu sem lögð er til í þessu frumvarpi sé í andstöðu við íslensku stjórnarskrána. Menn hafa ekki þorað eða lagt í þetta. Þetta er samt ein leið og eitthvað sem við getum gert.

Þriðji kosturinn er að breyta íslenskri löggjöf eins og hér er gert og menn velja hann. Þetta er einfaldasti og auðveldasti kosturinn og auðvitað sá fyrirferðarminnsti. Sá öruggasti að því leytinu til að við erum þá vissir um að Evrópulöggjöfin sem við innleiðum hér muni gilda. Menn eru þá vissir um það. Stóri gallinn við þessa breytingu eða þessa leið er þó að hún gengur ekki nægilega langt að mínu mati. Hvað á ég við með því? Það er augljóst að til þess að þetta geti orðið þarf að gera breytingar á stjórnarskránni. Ef það er vilji innan íslenska þjóðþingsins eins og mér heyrist vera — öll stjórnin, meiri hluti Alþingis og fjölmargir þingmenn heyrist mér í Sjálfstæðisflokknum og jafnvel fleiri flokkum styðja þetta mál — og svona víðtækur stuðningur, þá ætti að vera einfalt að ganga alla leið og gera breytingar á íslensku stjórnarskránni. Af hverju leggja menn ekki í það, herra forseti? Hví skyldi það vera? Menn leggja ekki í það þó að drjúgur þingmeirihluti sé fyrir því. Þeir vilja auðvitað ekki segja almenningi í þessu litla landi norður í Atlantshafi að fullveldi landsins yrði skert með þeim hætti heldur fara þessa afleitu leið sem getur leitt til þess að dómstólar hér heima þurfi að taka á þeim stóra sínum í framhaldinu og fella dóma stjórnarskránni í vil. Hafa menn hugsað það til enda ef þessi breyting gengur í gegn, tíminn líður og upp koma álitaefni, sem þau eflaust gera og gerist alltaf, og dómstólar landsins tækju fram fyrir hendur þingsins og kæmust að þeirri niðurstöðu, sem fjölmargir fræðimenn hafa gert, að þessi forgangsregla EES-samningsins standist ekki íslensku stjórnarskrána? Hafa menn leitt hugann að því? Ég er með þá ráðgjöf til stjórnarmeirihlutans að ganga alla leið, breyta stjórnarskránni, gefa eftir fullveldið að þessu leytinu til og veita Evrópureglum forgang samkvæmt stjórnarskrá. Hafa menn ekki kjark í það, herra forseti? Trúlega ekki.

Ég ætlaði líka að svara nokkrum álitaefnum sem ég hef heyrt í þingsalnum undir þessari umræðu. Í fyrsta lagi varðandi fæðingarorlofsdóminn sem féll á síðasta ári og menn vitna í í sífellu. Ég tel að menn oftúlki þennan dóm stórkostlega þegar þeir telja hann einhvern tímamótadóm að þessu leytinu til. Dómurinn í raun og veru segir ekki neitt nema það að þetta sé staðreyndin, að staðreyndin sé sú að íslensk lög séu túlkuð í samræmi við EES-samninginn og ekkert umfram það. Það veitir ekki Evrópulöggjöf forgang umfram íslensk lög ef ósamræmi er þar á milli. Dómurinn segir ekki neitt meira. Hvernig var með þá löggjöf sem um ræðir í þessu máli? Hún var innleidd með reglugerð, með stoð í fæðingarorlofslögunum, og er það ekki nema í fyllsta máta eðlilegt að dómstólar telji íslensk lög æðri en reglugerð? Það er í fyllsta máta eðlilegt, herra forseti. Ég held því að þessi dómur sé stórlega ofmetinn í umræðunni um þetta mál. Hann er raunverulega mjög eðlilegur og segir bara frá staðreyndum. Hann segir frá stöðu mála og að menn standi frammi fyrir vandamálinu. Vandamálið er til staðar, ég viðurkenni það, en hvernig menn ætla að leysa úr því finnst mér vera ófullnægjandi, algerlega ófullnægjandi. Ég er búinn að benda á þrjár leiðir til að komast í gegnum þennan skafl en menn ætla að fara leið sem ég er algjörlega ósammála og tel ófæra.

Ég ætla einnig að bregðast við, meðan ég hef tíma, orðum hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur þar sem hún svarar gagnrýni lagaprófessorsins Markúsar Sigurbjörnssonar sem hann viðhafði 2014 þegar hann skýrði hvers vegna þessi forgangsregla samningsins var ekki tekin upp árið 1993 þegar samningurinn var samþykktur. Hans skoðun var sú að hún hefði ekki verið ekki tekin upp vegna þess að hún var talin vera í andstöðu við íslensku stjórnarskrána. Að koma upp í ræðustól og fullyrða að þetta hafi breyst síðan þessi skoðun var sett fram fyrir 11 árum síðan — því er til að svara að íslenska stjórnarskráin hefur ekki breyst. 2. gr. stjórnarskrárinnar hefur ekki breyst frá 1993 og hún hefur ekki breyst frá 2014. Skoðun lagaprófessorsins er því í fullu gildi nú eins og hún var 2014 og eins og ákvæðið var þegar EES-samningurinn var lögfestur árið 1993. Þessi skoðun er enn þá í fullu gildi vegna þess að löggjöfin er óbreytt. Fæðingarorlofsdómurinn breytir engu þar um.

Ég ætla kannski ekki að eyða miklum tíma í að fjölyrða um afstöðu einstakra stjórnarliða til innleiðingar á þessari forgangsreglu heldur nefna að það er auðvitað einkennilegt að heill stjórnmálaflokkur — það er ekki eins og við séum að tala um eina manneskju, einn stjórnmálamann eða þingmann, heldur heilan stjórnmálaflokk sem telur tíu manns — virðist snúast á punktinum og taka einhvers konar handbremsubeygju um leið og hann kemst í stjórn hvað varðar mál sem þau töldu ófær, brjóta gegn stjórnarskrá og myndu aldrei samþykkja og höfðu stór orð um. Ég ætla ekki að lesa upp úr ræðum þeirra eins og sumir hafa gert en mikill hávaði var í kringum þetta. Í dag er þetta þó allt saman hið besta mál. Af hverju? Vegna þess að þau fengu einhvers konar örnámskeið í þessum fræðum einhvers staðar uppi í Stjórnarráði, uppi á Arnarhóli eða þar fyrir austan, og hafa kristnast að þessu leytinu til.