Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[15:27]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og verð að viðurkenna að ég heyrði ekki alveg lokaspurninguna með atkvæðagreiðslu. (NMG: Hvort þetta frumvarp geti beðið þar til eftir atkvæðagreiðsluna sem ríkisstjórnin er búin að boða. )Já, ég skil, um aðild að ESB. (NMG: Já. )Afsakið þetta, þingmaðurinn spyr mig hvort þetta frumvarp eigi að bíða fram yfir þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Ég verð að viðurkenna að fyrir mér er þetta tvennt ólíkt og ég ætla bara að vera heiðarleg með það að ég vona svo einlægt að við munum ekki ganga í ESB en ég vona líka einlægt að við verðum áfram þátttakendur í EES-samstarfinu þannig að í mínum huga finnst mér ekki rétt að hinkra með skref sem er mögulega eðlilegt að taka í þágu EES-samstarfsins vegna mögulegrar ESB-aðildar, sem ég vona að verði ekki.

Varðandi fyrri spurningu hv. þingmanns um hvað sé á okkar forsendum og hvað ekki og hver gæti verið munurinn þá erum við komin út í lögfræði sem ég verð að viðurkenna að ég fékk ekki nógu góða einkunn í í lagadeild til að geta svarað því með góðu móti. En það sem ég meinti með forsendum okkar er að Alþingi Íslendinga, með þá tæru hagsmuni sem eru Íslendinga og með lýðræðislega kjörnum fulltrúum þess — það var það sem ég vísaði í sem væri á okkar forsendum.