Bráðabirgðaútgáfa.

156. löggjafarþing — 56. fundur,  7. júní 2025.

Evrópska efnahagssvæðið.

85. mál
[15:31]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir hennar tölu og hefði getað sagt sjálfur margt af því sem hún lagði til málanna hér í pontu. Það er rétt sem hún segir að þetta er einhver merkilegasti og mikilvægasti samningur sem Íslendingar hafa gert á seinni árum og áratugum og hefur verið íslensku atvinnulífi, menningarlífi og svo mörgum öðrum sviðum samfélagsins til mikilla heilla. Ísland væri statt á allt öðrum stað ef við hefðum ekki undirgengist þennan samning á sínum tíma. Ég vil eiginlega umorða orðið undirgengist vegna þess að við höfðum vissulega frumkvæði að samningsgerðinni fyrir svo margt löngu á annarri öld. Það er rétt hjá hv. þm. Hildi Sverrisdóttur að við erum ekki að tala í þessu efni um ESB. Við erum að tala um EES. Þetta mál fjallar öllum þráðum um EES og hvaða áhrif sá samningur hefur á íslenska löggjöf og réttarfar eftir atvikum. Þetta snýst líka um það sem hv. þingmaður sagði að við viljum ekki að almenningur og eftir atvikum fyrirtæki missi þann rétt sem við höfum innan Evrópska efnahagssvæðisins. Við viljum ekki vera undirbátar þegar kemur að þeim réttindum sem við fáum með þessum samningi. Um það snýst málið.

Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann telji í ljósi þessarar umræðu að við metum ekki í dag þennan samning sem skyldi. Er áhugi okkar á ágæti samningsins farinn að dofna vegna þess að það er orðinn hátt í hálfur mannsaldur frá því að hann var gerður og við kannski áttum okkur ekki á því í dag hversu mikilvægur hann er?