laun æðstu ráðamanna.
Virðulegi forseti. Nú eru liðin tvö ár frá því að hæstv. forsætisráðherra, þá í stjórnarandstöðu, gagnrýndi harðlega hækkun launa æðstu ráðamanna þjóðarinnar og dómara. Hún sagði þá, með leyfi forseta, að það væri hennar skoðun að þetta gengi ekki upp, að þetta væru kolröng skilaboð sem væri verið að senda vinnumarkaðnum. Þetta var rétt hjá hæstv. forsætisráðherra. Þetta voru stór orð og þau voru sönn. Þau spegluðu réttlætiskennd og almenna skynsemi. En nú sem forsætisráðherra stendur hún frammi fyrir sömu spurningu og hefur valið að gera nákvæmlega það sem hún gagnrýndi áður, að láta laun þingmanna, ráðherra, forseta og fleiri æðstu ráðamanna, embættismanna, hækka um 5,6% á sama tíma og laun fólks á almennum markaði hækka um 3,5%.
Við erum stödd á viðkvæmum tímapunkti. Það er mikilvægara en nokkru sinni að halda sátt á vinnumarkaði. Ríkisstjórnin hefur sjálf sagt að hún ætli að leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu. En hvernig á fólk að trúa því þegar hún byrjar á því að veita sjálfri sér betri kjör en almenningur fær? Það skýtur skökku við og það grefur undan þeirri ábyrgð sem stjórnvöld vilja sýna eða segjast vilja sýna í orði og verki.
Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Af hverju ákvað ríkisstjórnin að halda í þessa 5,6% hækkun og hafna því að fylgja almennu launaviðmiði? Telur hún að það styrki traust á efnahagsstjórn og stuðli að samstöðu á vinnumarkaði? Hver á að sýna aðhald í þessu landi ef stjórnvöld ætla ekki að gera það sjálf?