laun æðstu ráðamanna.
Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra vill ekki grípa inn í núna en var tilbúin til að grípa inn í og grípa til þessa skammtímainngrips fyrir tveimur árum þegar þessi vandi var aðkallandi. Ég get ekki betur séð en að ríkisstjórnin berjist fyrir almannahagsmunum. Hún segist berjast fyrir almannahagsmunum gegn sérhagsmunum en síðan þegar kemur að eigin ráðherrum og æðstu embættismönnum þá gilda bara önnur viðmið í þessu landi. Þá eru laun hækkuð umfram almennan vinnumarkað, þvert á öll skilaboð um aðhald, ábyrgð og hófsemi. Þetta eru sömu einstaklingar og sögðu fólki að sitja á sér, að þola háa vexti um sinn. Þetta er sama fólkið og segir stjórnarandstöðuflokkana vinna að hagsmunum útvalinna og ekki heildarinnar. Því spyr ég hæstv. ráðherra aftur: Telur hún þessa ákvörðun samræmast (Forseti hringir.) þeim gildum sem ríkisstjórnin hefur selt þjóðinni? Fyrir tveimur árum vildi hæstv. forsætisráðherra setja bráðabirgðaákvæði (Forseti hringir.) til að koma í veg fyrir þetta. Hvers vegna vill hún ekki gera það núna?