staða Íslands innan NATO og framlög til varnarmála.
Frú forseti. Ég þakka fyrir góða og mikilvæga spurningu frá hv. þingmanni. Málið er auðvitað þannig að ástæðan fyrir því að ég og hæstv. utanríkisráðherra höfum verið jafn virkar og við höfum verið á síðustu vikum og mánuðum er einmitt að halda þessari sérstöðu Íslands á lofti, er einmitt að fá það 100% á hreint að nýr framkvæmdastjóri NATO, nýir þjóðarleiðtogar, átti sig á — af því að það eru ekkert alltaf allir að fylgjast með Íslandi jafn vel og við höldum — átti sig á sérstöðu Íslands. Út á það ganga þessir fundir. Þetta er hrein hagsmunagæsla fyrir landið.
Það er gaman að segja frá því, mikilvægt að segja frá því að á öllum þeim fundum sem ég hef setið, og ég veit að hið sama á við um hæstv. utanríkisráðherra, hefur verið tekið vel í þessa stöðu landsins. Ég átti fyrir skömmu fund með framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins þar sem við fengum staðfestingu á þessum skilningi Atlantshafsbandalagsins á stöðu Íslands.
Það sem hefur hins vegar verið til umræðu er að það eru tveir flokkar útgjalda til umræðu núna; 3,5%, sem eru bein varnartengd útgjöld þar sem við munum áfram skila í rauninni núllskýrslu, og síðan er það annar flokkur, 1,5%, þar sem varnartengd útgjöld eru undir. Þetta er ekki prósenta sem við erum að fara upp í á einni nóttu. Þetta er ekki prósenta sem er meitluð í stein. Þetta er flokkur. Þetta mun taka einhvern tíma. Það er verið að semja mögulega um fimm, átta, hátt í tíu ár í þessu samhengi. Þarna er um að ræða varnartengd útgjöld sem eru sum hver útgjöld sem nú þegar eiga sér stað á Íslandi en gætu núna flokkast þarna inn. Þarna er líka um að ræða útgjöld sem við þurfum sannarlega að styrkja okkur í, t.d. á sviði almannavarna, í vegakerfinu, hafnir, flugvellir, fjölþáttaógnir og fleira. Þetta mun því passa mjög vel inn í fjármálaáætlanir þessarar ríkisstjórnar, tel ég, og fleiri ef við förum fram í tímann þar sem þetta viðmið á við.