staða Íslands innan NATO og framlög til varnarmála.
Frú forseti. Þetta þarfnast frekari skýringa. Hvað mun taka meiri tíma? Aukin framlög til vegamála þannig að Ísland geti aukið hlut sinn í framlögum til varnarmála? Ég náði ekki alveg á hvaða leið ríkisstjórnin er með þessari hugsanlegu brellu sinni. En við höfum heyrt hæstv. utanríkisráðherra tjá sig mjög opinskátt um mikilvægi þess að Ísland leggi meira af mörkum í varnarmálum og áhuga, svo ekki sé meira sagt, á að Ísland verði einhvers konar þátttakandi í varnarsamstarfi, hugsanlegum framtíðarher Evrópusambandsins. Þetta getur ekki annað en truflað samskipti okkar við Bandaríkin þar sem við erum með sérstakan tvíhliða samning. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Er það alveg á hreinu að ekki standi til að innvikla Ísland frekar í eitthvert varnarsamstarf með Evrópusambandinu og vanrækja samstarf við Bandaríkin á meðan?