staða Íslands innan NATO og framlög til varnarmála.
Frú forseti. Nú er það þannig að Ísland er á ekkert ósvipaðri leið og önnur ríki Atlantshafsbandalagsins og veru okkar í Atlantshafsbandalaginu fylgir auðvitað að við séum áfram góður bandamaður. Þessi varnartengdu útgjöld snúa að því að styrkja okkar stöðu, okkar sérstöðu. Við munum ekki áfram getað haldið í okkar sérstöðu ef við höldum ekki uppi því að styrkja einmitt okkar getu sem bandamanns, sem gistiríkis. Út á það gengur þetta þannig að þetta eru miklir hagsmunir.
Varðandi samskipti okkar við Evrópu og Bandaríkin þá vil ég bara vekja athygli á því að þessar viðræður eða þessi samtöl sem m.a. hæstv. utanríkisráðherra hefur átt við Evrópusambandið þessu tengt er eitthvað sem öll ríki í kringum okkur eru með einum eða öðrum hætti að skoða. Bretland, mjög nýlega, sem gekk út úr Evrópusambandinu, er að skoða og hefur verið að skoða og hefur fengið slíkt samstarf í gegn. Og það hefur ekkert að gera með okkar samskipti við Bandaríkin. Evrópa er að styrkja sig til að geta verið góður bandamaður með Bandaríkjunum og við munum áfram vera góður bandamaður Bandaríkjanna. Það liggur alveg fyrir.