156. löggjafarþing — 57. fundur,  10. júní 2025.

breyting á lögum um almannatryggingar.

[13:47]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem varðar það mál er sem er núna inni í hv. velferðarnefnd og snýst um að vísitölutengja bætur. Hæstv. ráðherra hefur væntanlega seinni part mars samþykkt þetta mál fyrir sinn hatt í gegnum ríkisstjórn. Málinu er útbýtt 29. mars þannig að á undan hefur ríkisstjórn, og þingflokkar stjórnarflokkanna, samþykkt málið. En nú ber svo við að 2. júní barst velferðarnefnd minnisblað upp á einar sex blaðsíður sem er einhver harkalegasta traktering sem ég hef séð sent til nefndar frá skrifstofu ráðherra, sem í þessu tilviki er ráðuneyti hæstv. ráðherra. Bara svo ég tæpi á því stuttlega, með leyfi forseta, þá segir hér:

„[Það] getur stangast á við markmið um sjálfbærni ríkissjóðs til lengri tíma þar sem framtíðarútgjöld aukast sjálfkrafa án þess að tekjur fylgi eftir eða mat fari fram á heildaráhrifum […] sem er andstætt meginmarkmiðum fjármálastefnu og laga um opinber fjármál.“

Áfram segir í minnisblaðinu: „Í varfærni, sem er eitt af grunngildum laga um opinber fjármál, er mikilvægt að forðast ákvarðanir sem geta haft ófyrirséðar afleiðingar.“

Og áfram segir, með leyfi forseta: „Fjármála- og efnahagsráðuneytið getur tekið undir að ekki liggja fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum breytingarinnar …“

Þetta er bara úr tveimur punktum af níu í þessu minnisblaði. Ég vil því spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Hugnaðist honum málið vel þegar það var samþykkt í gegnum ríkisstjórn eða gerði hann fyrirvara um þessa hluti þá strax? Eða er þetta að koma í andlitið á stjórnarmeirihlutanum í hv. velferðarnefnd núna 2. júní án þess að stjórnarliðar hafi haft svigrúm til að bregðast við? Spurningin er sem sagt: Gerði hæstv. fjármálaráðherra athugasemdir á þessum nótum á sínum tíma þegar málið var afgreitt í gegnum ríkisstjórn eða eru þær núna fyrst koma fram? Þetta eru engar smá athugasemdir sem skrifstofa fjármálaráðherra gerir við frumvarp hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, formanns Flokks fólksins, Ingu Sæland.