breyting á lögum um almannatryggingar.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans spurningu. Þær ábendingar sem fjármálaráðuneytið kom með varðandi þetta frumvarp snúa að fyrirsjáanleika þróunar útgjaldanna. Þessi ófyrirsjáanleiki var fyrirséður og á hann var lagt mat. Ég styð þetta frumvarp sem hæstv. félagsmálaráðherra hefur lagt fram, hef stutt og mun styðja. Það er mikilvægt að halda til haga að um fjórði partur útgjalda ríkisins eru launaútgjöld. Þau eru enn þá frekar því marki brennd sem ábendingar fjármálaráðuneytisins snúa að. Þýðir það að það séu áform í fjármálaráðuneytinu um að hætta að hafa starfsfólk hjá ríkinu? Að sjálfsögðu ekki. Við þennan ófyrirsjáanleika verður einfaldlega að búa og til hans þarf að taka tillit í áætlanagerð. Eykur hann fyrirsjáanleika opinberrar áætlanagerðar? Nei, en það er kostnaður sem við sættum okkur við vegna þess að þetta frumvarp er mjög mikilvægt.