breyting á lögum um almannatryggingar.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Mér þótti það nú heldur undarlegt að hæstv. ráðherra segði varðandi ófyrirsjáanleikann: Á hann var lagt mat. Hér beinlínis stendur, með leyfi forseta:
„Fjármála- og efnahagsráðuneytið getur tekið undir að ekki liggja fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum breytingarinnar…“
Og ef þetta er allt svona ásættanlegt og hæstv. ráðherra styður þetta mál eins og það liggur hér fyrir, hvers vegna sendi þá ráðherrann þetta minnisblað? Ráðherrann lætur að því liggja að fjármálaráðuneytið sé eitthvað alveg ótengt hæstv. fjármálaráðherra. Fjármálaráðuneytið er í raun auðvitað bara skrifstofa hæstv. fjármálaráðherra og það fer ekkert plagg frá fjármálaráðuneytinu öðruvísi en að það sé í sátt við skoðun og afstöðu hæstv. ráðherra þannig að þá teiknast upp sú mynd að þetta sé einhvers lags sýndarmennskuminnisblað. Ef þetta skiptir engu máli og hæstv. ráðherra styður málið eins og það liggur fyrir, hvers vegna þá allur þessi leirburður hér? Þetta er einhver ný nálgun á merkingu þeirra skilaboða sem hæstv. ráðherra sendir hvað mál er hann varða inn til nefnda Alþingis. Ég ítreka að það liggja ekki fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum breytingarinnar. Þetta bara stendur hérna (Forseti hringir.) í 3. lið þessa sex blaðsíðna minnisblaðs.