aukin verkefni til lyfjabúða.
Virðulegi forseti. Hér á Íslandi búum við að mjög öflugu heilbrigðiskerfi þrátt fyrir að sumum virðist það sérstakt kappsmál að nýta sérhvert tækifæri til að tala það niður. Kostir íslenska heilbrigðiskerfisins eru ekki síst fólgnir í öflugri samvinnu hins opinbera og einkaaðila. En betur má ef duga skal, virðulegur forseti, og til staðar eru mýmörg tækifæri til að efla einkaaðila í heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að veita enn betri þjónustu en gert er í dag og um leið að létta á álagi heilbrigðisstarfsfólks hjá hinu opinbera.
Í nýlegri hvítbók um stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra lyfjabúða kemur fram að á Norðurlöndunum hefur þróunin verið sú að færa aukin verkefni til lyfjabúða með það að markmiði að bregðast við auknu álagi innan heilbrigðiskerfisins og styrkja lyfjabúðir sem hluta af heilbrigðisþjónustunni og einnig sem viðbragð við mönnunarvanda í heilsugæslunni. Því vil ég spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra um hvort hann telji þörf á því að færa aukin verkefni til lyfjabúða. Og ef svo er, hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að það verði útfært?