156. löggjafarþing — 57. fundur,  10. júní 2025.

aukin verkefni til lyfjabúða.

[13:57]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég ætla að þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Þau voru svo góð að mín seinni spurning er orðin að engu. Ég ætla þá kannski að nefna það sem hefur verið einna umdeildast í þessu máli sem hefur í rauninni verið það að færa ávísanaréttinn frá læknum og yfir til mögulega annarra starfsstétta. Við höfum svo sem tekið þann slag oftar en einu sinni hér inni. Má þar nefna t.d. hjúkrunarfræðinga og þá er væntanlega verið að hugsa um lyfjafræðinga að einhverju leyti hvað þetta varðar og ég veit að það er ákveðin mótstaða innan heilbrigðisstétta gegn því að þetta verði að veruleika.

Þá langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra um annað mál sem mér er hugleikið og það er að halda uppi bara lyfjabúðum á landsbyggðinni. Nú er það þannig að í elstu lögunum var gert ráð fyrir að það væri ákveðinn hausafjöldi á bak við hvert apótek og það hefur gengið mjög illa að semja við Lyfjastofnun t.d. um lyfjaverð í tengslum við smásöluálagningu. Ég vil leyfa mér að segja að akkúrat um þessar mundir og inn í nánustu framtíð þá blasir við (Forseti hringir.) að lyfjabúðir munu flosna upp á landsbyggðinni þar sem eru færri en 4.000–5.000 hausar á bak við hvert apótek.