156. löggjafarþing — 57. fundur,  10. júní 2025.

staða verknámsskóla landsins og uppbygging þeirra.

[14:00]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Það er nú þekkt hugtak að vika sé langur tími í pólitík og það þekkjum við sem hér erum inni manna best. En það var þannig, virðulegur forseti, að þegar ég var hér í morgun að undirbúa mig fyrir þennan dagskrárlið og ætlaði að beina fyrirspurn, sem ég er að gera, til hæstv. ráðherra Guðmundar Inga Kristjánssonar, mennta- og barnamálaráðherra, þá áttaði ég mig á því að spurningunni var svarað.

Það er nefnilega þannig, virðulegur forseti, að fyrirspurnin sneri að stöðu verknámsskóla landsins og uppbyggingu þeirra. Það er mál sem ég hef talað um í fjölmiðlum og hér á þingi og bent á mikilvægi þess að haldið verði áfram með þessi verkefni þar sem mikil eftirspurn er eftir þessum plássum og sú aðstaða sem við bjóðum upp á í dag í þessum skólum er með öllu óboðleg. Nú í morgun barst fréttatilkynning frá ráðuneyti hæstv. mennta- og barnamálaráðherra þar sem kom fram að það ætti að halda áfram með skólana á Ísafirði, á Suðurnesjum, í Reykjanesbæ, á Sauðárkróki og á Akureyri. 2,6 milljarðar sem eru á uppsöfnuðum framkvæmdalið ráðuneytisins yrðu nýttir í það auk 40% framlags sveitarfélaganna, sem ég áætla að sé svipuð upphæð, um 2,6 milljarðar, miðað við heildarkostnað upp á 6,6 milljarða.

Ég vil bara koma hér upp og þakka hæstv. ráðherra fyrir að hlusta og bregðast við því ákalli sem kom m.a. úr þessum ræðustól og frá skólum og sveitarfélögum landsins og segja bara: Takk fyrir.