staða verknámsskóla landsins og uppbygging þeirra.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans fyrirspurn og bara minna á að ég er Kristinsson, ekki Kristjánsson, en það er allt í lagi, það er ekki í fyrsta skipti sem það ruglast. En ég verð bara að segja að þetta var í sjálfu sér aldrei vandamál og það var eiginlega bara gert stórfurðulegt óþarfavandamál úr einfaldri 300 millj. kr. tilfærslu. Ég botna ekki á nokkurn hátt í því hvernig það gat orðið að þessu risavandamáli vegna þess að við erum með 2,6 milljarða tilbúna til framkvæmda þannig að þetta voru rétt rúmlega 10% af því fjármagni. Við erum núna búin að ganga frá því þannig að það verður haldið áfram á fullu með Breiðholtsskóla og síðan verða þessir fjórir skólar teknir og farið í hönnun og byrjað á framkvæmdum í þeim, þannig að það er búið að geirnegla það. Síðan er hlutunum auðvitað ekki lokið, þetta er bara fyrsti fasinn og síðan verður tekinn annar fasi sem þarf auðvitað að fara að horfa á, eins og Austurland og Suðurland. En við erum að framkvæma, eins og þessi ríkisstjórn hefur sagt, verkstjórnin, og við erum að fara í verkin. Við erum að fara að byggja og það stóð aldrei neitt annað til. Það eina sem við vorum að gera í síðustu viku var það að flýta ferlinu og klára undirbúninginn og fara í þetta. Þannig að það er eiginlega með ólíkindum að það skuli hafa komið upp þessi umræða um að þetta stæði ekki til. Við getum bara þakkað fyrir það að þessi ríkisstjórn lætur verkin tala.