156. löggjafarþing — 57. fundur,  10. júní 2025.

fjáraukalög III 2025.

445. mál
[14:33]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu. Mig langar þó að fylgja því aðeins betur eftir hér sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason kom inn á. Hér sést að áherslumál ríkisstjórnarinnar fela í sér aukin útgjöld sem er mætt með ráðstöfunum; með niðurfellingu verkefna eða frestun á framkvæmdum eða endurskoðun. Niðurstaðan er samt sem áður sú, frú forseti, að hallinn á rekstri ríkissjóðs er aukinn frá því sem hefði annars orðið. Það hlýtur að vera hægt að fá skýrari svör um það af hverju þær þúsundir tillagna um hagræðingaraðgerðir, sem ríkisstjórnin gerði mjög mikið úr hér í upphafi þessa þings, sjást ekki hér fyrr til þess að hallinn á rekstri ríkissjóðs þyrfti ekki að aukast eins og raun ber vitni út af þessum aðgerðum.