156. löggjafarþing — 57. fundur,  10. júní 2025.

fjáraukalög III 2025.

445. mál
[14:35]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég fæ í mínu seinna andsvari að nefna að þrátt fyrir að þessi fjárauki hafi verið samþykktur í ríkisstjórn fyrir meira en mánuði síðan er hann að koma til 1. umræðu hér í dag, svona þegar styttist líklega í þinglok. Ég vona að hæstv. ráðherra sé sammála mér um að það þýðir ekki að vinna nefndarinnar verði einhvern veginn stytt eða málið fái ekki vandaða umfjöllun í nefnd sem mál sem þetta myndi alltaf krefjast og batna við. Ég hef t.d. í huga þá styrki sem á að veita varðandi ESB-umræðu. Nú er það svo að opinbert fé til fjölmiðla, stjórnmálaflokka eða eitthvað slíkt, er ekki veitt nema með alveg ígrunduðum, niðurnegldum, hlutlægum mælikvörðum og ástæðum um hver fær hvað og af hverju og hver veitir það og af hvaða ástæðum o.s.frv. Þannig að blasir ekki við að í t.d. þeim anga málsins eins og ég nefndi (Forseti hringir.) — þarf ekki aðeins að undirbyggja betur hlutlægnikröfur þar um?